Félagsstarf.
Í félagsstarfi er starfandi einn starfsmaður, tómstunda- og félagsmálafræðingur, en félagsstarf fer fram bæði í Félagsbæ á 1. hæð og á deildum. Boðið er upp á samveru og ýmis konar afþreyingu og virkni allt eftir getu hvers einstaklings. Miðað er við að sem flestir geti tekið þátt í starfseminni bæði hópvinnu og einstaklingsvinnu. Í félagsstarfi er boðið upp á handavinnu og föndur, lesið er upp úr dagblöðum og bókum, hlustað á tónlist og sungið, spurt og spjallað um liðna tíð.

Vikulega er spilað Bingó eða önnur spil. Á myndbandsdögum eru sýndar íslenskar kvikmyndir eða fræðslumyndir, eins og Öldin sem leið eða Stiklur Ómars. Á bökunardögum er bakað á deildum, fyrir jólin eru bakaðar smákökur og skorið út laufabrauð.

Harmonikkuspil og söngur eru ýmist í sameiginlegu rými eða inni á deildum. Algengt er kringum jól að kórar koma í heimsókn og syngja fyrir heimilismenn. Í desember er haldin jólaskemmtun í sal félagsmiðstöðvar en þar hefur einnig verið boðið upp á leiksýningar. Á sumrin er góða veðrið notað með vöfflubakstri og kaffi í garðinum fyrir utan dægradvöl.

Á endurhæfingardeild hefur styrkur frá Lions gert kleift að hafa starfsmann yfir sumarmánuðina við að sinna félagsstarfi heimilismanna í Brekkubæ. Þér er farið í leikhús eða tónleika, heimsóknir á söfn eða kaffihús, jafnvel verslunarferðir, allt eftir getu og vilja hvers einstaklings.