Skógarbær
Þjónusta
Starfsfólk
Umsóknir
Fréttir og fróðleikur
Forsíða
Hjúkrun
Læknisþjónusta
Sálgæsla
Sjúkraþjálfun
Iðja
Eldhús
Þvottur og þrif
Þú ert hér:
Forsíða
Þjónusta
Hjúkrun
Hjúkrun
Í Skógarbæ eru tvær hjúkrunardeildir sem hafa þrjár hjúkrunareiningar hvor og er þar rými fyrir 81 einstakling.
Deild I samanstendur af Brekkubæ, Austurbæ og Efstabæ. Brekkubær er fyrir 11 yngri hjúkrunarsjúklinga, Austurbær er almenn hjúkrunareining fyrir 17 aldraða og eru þessar hjúkrunareiningar á I hæð. Efstibær er á III hæð sem er lokuð hjúkrunareining fyrir 10 minnissjúka.
Deild II samanstendur af Hólabæ sem er almenn hjúkrunareining fyrir 16 aldraða á II hæð, Vesturbæ sem er fyrir 12 minnissjúka og Heiðabæ sem fyrir 15 minnissjúka og eru þetta lokaðar hjúkrunareiningar fyrir minnissjúka staðsettar á II hæð.
Á hverri hjúkrunareiningu er áhersla lögð á að sjálfræði einstaklingsins sé ávallt í fyrirrúmi og að hjúkrun sé sérsniðin að þörfum hans. Samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu ber hjúkrunarforstjóri faglega ábyrgð á hjúkrunarþjónustu í Skógarbæ. Hjúkrunarfræðingar starfa undir hans stjórn og hafa yfirumsjón með skipulagningu hjúkrunar á sinni deild og að skapa starfsmönnum sem best skilyrði til starfa miðað vil aðstæður hverju sinni. Hjúkrunarfræðingar forgangsraða verkefnum á árangursríkan hátt þannig að fagleg færni og víðtæk reynsla starfsmanna nýtist sem best.
Öll hjúkrun og umönnun miðast við að einstaklingurinn haldi reisn sinni og virðingu þrátt fyrir veikindi og fötlun. Sjálfsákvörðunarréttur einstaklingsins er virtur og haft er samráð við aðstandendur um velferð þeirra. Áhersla er lögð á alúðlega framkomu alls starfsfólks við sjúklinga og aðstandendur þeirra.