Eldhús
Í eldhúsinu starfar einn næringarrekstrarfræðingur og sex starfsmenn.
Markhópar eldhússins eru heimilismenn og starfsfólk Skógarbæjar, gestir og starfsfólk félagsmiðstöðvarinnar.
Opnunartími eldhússins er frá 08:00 - 20:00 alla virka daga en 08: - 19:00 um helgar.

Markmið eldhússins eru:
  • Leiðbeinandi stefna fyrir heimilismenn og starfsmenn.
  • Að fylgja manneldismarkmiðum fyrir heimilismenn.
  • Almenna fæðið þarf að henta sem flestum heimilismönnum.
  • Hafa réttar skammtastærðir og rétt sérfæði fyrir heimilismenn.
  • Virða matarvenjur þeirra kynslóða sem á hjúkrunarheimilinu eru.
  • Að heimilismönnum og starfsmönnum líði vel í Skógarbæ.
Hlutverk eldhússins fyrir heimilismenn Skógarbæjar:
  • Útbúa matseðla.
  • Útbúa og afgreiða morgunverð, síðdegishressingu og kvöldverð.
  • Taka á móti tilbúnum heitum hádegismat frá SS og afgreiða.
  • Kaffibrauðið sem er í boði er yfirleitt heimabakaðar kökur eða keypt  brauðmeti.
  • Heitur matur er fimm sinnum í viku á kvöldin, annars er boðið upp á súpu og brauð með áleggi. Eldhúsið sér um að útbúa þessa máltíðir.
  • Sjá um mat á skemmtunum og ýmsum uppákomum.
Hlutverk eldhússins fyrir starfsfólk Skógarbæjar:
  • Útbúa og afgreiða morgunverð, hádegisverð, síðdegishressingu og kvöldmat.  Afgreitt er kaffi, te, gos, ávextir, skyr og bollasúpur allan daginn.
  • Morgunverður, boðið er upp á brauð, viðbit, ostur, smurostur, grænmeti, ávextir, súrmjólk og hafragrautur. Hægt er að borða morgunverð í matsal Skógarbæjar eða á deildum.
  • Í hádeginu eru tveir matseðlar í boði á virkum dögum. Annars vegar heitur matur frá Vitatorgi (verður að panta daginn áður fyrir kl. 15:00) og hins vegar réttur sem útbúinn er í eldhúsinu.
  • Síðdegishressing er yfirleitt heimabakaðar kökur og smurt brauð, mismunandi verð er á kaffibrauði eftir tegund.
  • Starfsmenn Skógarbæjar borga matinn með auðkenniskortum.
Starfsmenn eru í SFR og Eflingu. Laun eru greidd samkvæmt þessum samningum.

Matsalur fyrir starfsmenn Skógarbæjar er staðsettur í sal Félags- og þjónustumiðstöðvarinnar og er opnunartíminn eftirfarandi:

Morgunverður kl. 
09:00 - 10:30
Hádegisverður kl.
11:45 - 12:45
Síðdegishressing kl 15:00 - 16:00

Hlutverk eldhússins fyrir Félagsmiðstöðina:
  • Reykjavíkurborg kaupir alla þjónusta af eldhúsi Skógarbæjar hvað varðar þjónustu og gesti Félagsmiðstöðuna.
  • Veitingar á fundi og veislur fyrir Skógarbæ og Félagsmiðstöðina.