Lionsstyrkur 2010
Lionsklúbburinn Freyr veitti í vor aftur styrk fyrir félagsstarfsemi í Brekkubæ sem er deild fyrir yngri hjúkrunarsjúklinga. Styrkurinn var 700.000 kr. og hafa þeir frá árinu 2007 veitt samtals 2.7 m.kr. í þessa starfsemi. Markmiðið með styrknum er að veita einstaklingþjónustu fyrir þá 11 einstaklinga sem þar búa og lögð er áhersla á finna hverjar óskir og þarfir hvers og eins eru. Mikið hefur verið óskað eftir afþreyingu utan stofnunarinnar og þá helst kvikmyndahús og kaffihús, einstaka tónleika eða leikhús og jafnvel keilu. Með þessum styrk hefur tekist að efla félagsstarf í Brekkubæ yfir sumarmánuðina og gefa þessum einstaklingum tækifæri til að lifa jákvæðu lífi með fötlun sinni. Meðalaldur er um 50 ár allt frá 36-66 ára og því ómetanlegt að geta gert þeim kleift að taka meira þátt í lífinu utan stofnunarinnar.
Færum við Lionsklúbbnum Frey okkar bestu þakkir fyrir þá vinnu sem þeir hafa lagt á sig til fjáröflunar til að bæta lífsgæði heimilismanna í Skógarbæ.
Hrefna Sigurðardóttir