Lionsklúbburinn Engey býður upp á skemmtun og kaffiveitingar
Lionskonur í Lionsklúbbnum Engey hafa í mörg ár komið í Skógarbæ hlaðnar tertum og ýmsu góðgæti með kaffinu og hafa þá boðið upp á einhverjar skemmtanir. Í fyrra var ákveðið að halda skemmtunina í sal Félagsmiðstöðvarinnar og Húnakórinn söng fyrir heimilismenn, starfsmenn og aðstandendur. Eftir sönginn var boðið upp á dýrindis kaffimeðlæti í salnum .
Næstkomandi sunnudag, 12. febrúar, verður skemmtunin endurtekin, Húnakórinn mætir og Lionskonur koma með kræsingar sem boðið verður upp á eftir sönginn. Skemmtunin verður í sal Félagsmiðstöðvarinnar, kórinn syngur milli 14.00-15.00 og eru aðstandendur hjartanlega velkomnir á skemmtunina.