Velkomin á heimasíðu Skógarbæjar
Markmið okkar með heimasíðu er að veita aðgengilegar og gagnlegar upplýsingar um þá þjónustu, sem veitt er á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ og segja frá þeirri starfsemi, sem þar fer fram. Áhersla er lögð á að vefurinn innihaldi jafnan nýjar upplýsingar og sýni hvað heimilið hefur upp á að bjóða hverju sinni.
Hjúkrunarheimilið Skógarbær er sjálfseignastofnun, stofnuð af Reykjarvíkurborg, Reykjarvíkurdeild RKÍ og Kvennadeild Reykjarvíkurdeildar RKÍ, ásamt stéttarfélögunum Dagsbrún, Framsókn og Sókn. Auk þess lagði Framkvæmdasjóður aldraðra fram 40% af stofnkostnaði. Rekstrarfé Skógarbæjar er í formi daggjalda frá ríkinu.
Skógarbær var formlega tekin í notkun 16. maí 1997. Fjöldi rýma var í upphafi 77 en var síðan fjölgað í 81 rými. Heimilið var hannað með það í huga veita heimilislegt yfirbragð og því ákveðið að deildirnar skyldu vera minni en áður tíðkaðist og var fámennasta deildin aðeins 8 rými en sú fjölmennasta 16 rými. Tvær deildir 8 og 11 rýma deildir voru ætlaðar fyrir minnissjúka einstaklinga, 3 voru almennar hjúkrunardeildir, 15-16 rými, og ein deildin var ætluð fyrir yngri hjúkrunarsjúklinga, 11 rými. Auk þess voru 3 rými á 1. hæð fyrir hvíldarinnlagnir.
Frá því að Skógarbær opnaði hafa orðið þær breytingar að einni af almennu deildunum hefur verið breytt í deild fyrir minnissjúka, lokaða deild, vegna aukinnar eftirspurnar um pláss fyrir einstaklinga með Alzheimer eða aðra minnissjúkdóma. Einnig voru hvíldarplássin lögð af og þeim breytt í varanleg rými.
Í Skógarbæ í dag eru 37 rými fyrir minnissjúka, 11 rými fyrir yngri hjúkrunarsjúklinga og 33 rými á almennri hjúkrunardeild.
Símanúmer eru undir "Starfsfólk".
Vakthafandi hjúkrunarfræðingur á kvöld- og næturvöktum er með síma 510-2121.
Fréttir
12.03.2013
Kaffiboð og skemmtun
meira ->
14.02.2013
Samstarf við Skógarbæ og Eir um líknarþjónustu á hjúkrunarheimilunum
meira ->
04.01.2012
Félagsstarf
meira ->
14.09.2011
Lionsstyrkur 2011
meira ->
21.09.2010
Lionsstyrkur 2012
meira ->
Á döfinni
06.02.2012
Lionsklúbburinn Engey býður upp á skemmtun og kaffiveitingar
meira ->
17.10.2011
Fræðsla.
meira ->
17.10.2011
Opið hús í Skógarbæ
meira ->